Færsluflokkur: Ljóð
28.12.2006 | 21:00
Jólasveinar13
Nú er það hann Kertasníkir sem kom þann 23.des(Afsakið að þetta kemur dálítið seint).
Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.
Hann elti litlu börnin,
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2006 | 11:30
Jólasveinar12
Nú er það hann Ketkrókur sem kom þann 22.des.
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag.-
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.12.2006 | 14:09
Jólasveinar11
Nú er það hann Gáttaþefur sem er að hnýsast hjá mér og gerði það 21.des.
Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.12.2006 | 14:02
Jólasveinar10
Nú er það hann Gluggagægir sem ætlar að líta í skjáinn(gluggan) hjá mér og leit inn þann 20.des.
Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2006 | 13:53
Jólasveinar9
Nú er komið að Bjúgnakræki sem kom þann 19.des.
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2006 | 13:23
Jólasveinar8
Nú er komið að Skyrgámi sem kom þann 18.des ef þið takið eftir því þá er hann kallaður ´´Skyrjarmur´´það er af því að þetta er dálítið gamalt ljóð en hvað með það skoðum ljóðið.
Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2006 | 16:01
Jólasveinar6
Nú er það Askasleikir sem kom þann 16.desember.
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus.-
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2006 | 11:26
Jólasveinar5
Nú er komið að Pottasleiki sem kom þann 15.desember þið þið sjáið að í ljóðinu er hann nefndur ´´Pottaskefill´´ það er af því að þetta er dálítið gamalt ljóð en hvað með það byrjum ljóðið.
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku´ upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti ´ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2006 | 18:09
Jólasveinar4
Nú er það hann Þvörusleikir sem kom þann 14.desember.
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2006 | 17:58
Jólasveinar3
Nú er komið að Stúfi sem kom þann 13.desember.
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar ,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)