31.3.2007 | 10:29
Ath
Jæja mamma er búinn að skamma mig og skamma af því að ég hef ekkert skrifað í svolítið langan tíma svo ég ætla að segja að það er bráðum að verða til ný mynda mappa sem er með myndum sem ég hef teiknað sjálfur og ég ætla líka að setja inn nýjan leik vonandi líkar þér hann af því ég spring oft úr hlátri í þessum leik.
ég gat ekki sett inn leikinn beint inn en ýttu á þessa síðu og sláðu inn í leitastreng síðurnar ,,Line Rider'' og í þessum leik geturðu búið til sleða braut fyrir lítinn strák og skoðað brautir sem aðrir hafa gert og ef þú vilt fara í leik sem er mjög skemmtilegur og erfiður prófaðu þá að skrifa inn í leitarstreng B2 ,,án efa'' og veldu ,,án efa erfiðasti leikur í heimi'' og prófaðu allaveg einn þessara leikja og hafðu rosa gaman.
Kv.Ragnar289.
Athugasemdir
Gaman að sjá þig aftur hér Ragnar minn. Hlakka til að sjá myndamöppuna. Knús
Jórunn Sigurbergsdóttir , 31.3.2007 kl. 12:25
Hæ Raggi og gaman að sjá að það er komið líf í þig aftur og farin að skrifa. Ég hlakka mikið til að sjá myndirnar þínar. Og helst af öllu sjálfan þig í sumar það er aldrei að vita hvað skeður kannski kem ég eða þig til mín.
kveðja unsla punsla
Unnur Guðrún , 31.3.2007 kl. 16:59
jæja góði það var mikið að eitthvað kom á blað hjá þér ,vonað skannin okkar komist í lag svo að þú getir sýnt myndirnar þína því þær eru alveg frábærar eins og þú knús og kossar , mamma
Laugheiður Gunnarsdóttir, 3.4.2007 kl. 22:27
hæ frændi
hélt þú værir bara kominn með nóg af okkur!!
nei þú ert ungur og hefur líf hehe
knús
xx
K
Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.4.2007 kl. 10:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.